17.3.2009 | 12:18
Þriðjudagur 17. mars
EHG
Í dag byrjuðu nemendur að vinna í verkefnum sínum.
Sumir nemendur fóru úr skólanum til að taka viðtöl og kynnast Rauða krossinum á því sviði því sem verkefni þeirra fjallar um.
Nemendur stóðu sig vel á fyrsta degi þemavikunnar með góðri frammistöðu og krakkar eru iðnir við glærusýningar.
Margir taka þátt í hjálparstarfi Lindaskóla en þar er í gangi skiptimarkaður og fatasöfnun fyrir Rauða krossinn. Þar er allt á fullu og er kominn mikill fatnaður þangað.
Einhverjir nemendur eru farnir að setja upp flóttamannabúðir.
Tölvustofan hefur verið yfirfull í allan dag þar sem fullt af krökkum nota tölvur við verkefni sín.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.