17.3.2009 | 09:30
Vikan 16.-20. mars
Árlega er haldin þemavika í Lindaskóla.
Þemað í unglingadeildinni í ár er Rauði kross Íslands.
Þemanu er skipt í flokka og þeim í undiflokka. Nemendur fengu að velja sér undirflokk við þeirra hæfi. Svo var nemendum skipt í hópa sem vinna saman alla vikuna. Kennarar ganga á milli kennslustofa og fylgjast með hvað nemendurnir eru að gera.
Vikan byrjaði á umfjöllun og kynningarmyndböndum um Rauða krossinn, einn sjálfboðaliði kom í heimsókn og hélt fyrirlestur fyrir nemendur.
EHG
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.